
+354 416 0607
steinunn (at) liska.is
Steinunn Harpa Einarsdóttir
Tækniteiknari
Steinunn er tækniteiknari sem hefur sérhæft sig í raflagna- og lýsingateikningu í AutoCAD, Revit og DIALux.
Samhliða námi starfaði Steinunn sem teiknari fyrir rafverktaka en þar kviknaði áhuginn á raflögnum og skilaði hún lokaverkefni sínu í raflagnateikningu.
Auk þess að vera tækniteiknari Lisku sér hún oft um sallat- og matargerð fyrir fólkið hér á skrifstofunni. Uppáhald allra er þegar Steinunn mætir með nýbakað bananabrauð.
Steinunn hefur gaman af því að prófa, upplifa og læra nýja hluti, hvort sem það er í vinnu eða lífinu. Helstu áhugamál hennar eru íþróttir og útivist en prjónamennska er í algjöru uppáhaldi.
Sérsvið:
- Tækniteiknun
- Lýsingarútreikningar
- BIM
- Matráður
Helstu forrit:
- AutoCAD
- Revit
- Naviate
- Solibri
- Tekla BIMsight
- Dialux