


Örn er byggingaverkfræðingur með sérhæfingu í sjálfbærni bygginga og þá sérstaklega gagnvart dagsbirtuhönnun. Örn hefur einnig tileinkað sér umsjón og ráðgjöf varðandi upplýsingalíkön mannvirkja (BIM).
Örn stundaði nám við Háskóla Íslands og Konunglega Tækniháskólann í Stokkhólmi (KTH) þaðan sem hann útskrifaðist með mastersgráðu í byggingarverkfræði (e. M.Sc. Architectural Engineering).
Þegar Örn er ekki í vinnunni að greina dagsbirtu eða annað líkt tileinkar hann tímanum sínum ljósmyndun eða einhverskonar útivist en það eru hans helstu áhugamál.
Annað....
Sérsvið:
Teymið
ABOUT
TEAM
PROJECTS
NEWS
CONTACT
Verkkaupi: Faxaflóahafnir
Ár: 2025
Hlutverk Lisku:
-
Lýsingar- og lágspennuhönnun
Samstarfsaðilar vekrefnis:
-
Burðarþolshönnun: Verkís
-
Uppsetning: Ljóstvistar
Framleiðendur:
-
Ferrozink/Valmont
-
Philips
-
Vizulo
Myndefni: Jóel Daði Ólafsson / ÍMYND Productions
Endurbætur á ljósvist við Ægisgarð í Gömlu höfninni í Reykjavík.
Með framkvæmdunum hafa birtuskilyrði á svæðinu batnað til muna og orkunýtni lýsingarinnar aukist umtalsvert.
Tvö eldri möstur voru fjarlægð og í þeirra stað sett upp ný, 18 metra há stálmöstur. Eldri ljósbúnaði með natríumperum var jafnframt skipt út fyrir afkastamikla LED-lampa með 3000 K litarhitastigi. Þá voru utanáliggjandi flúrlampar á húsnæði við Ægisgarð einnig endurnýjaðir með 3000 K litarhitastigi.
Markmið framkvæmdanna var að auka og jafna birtu á svæðinu, bæta öryggi og skapa betra heildaryfirbragð fyrir gangandi vegfarendur, starfsfólk og aðra sem fara um svæðið. Nýi búnaðurinn veitir jafna lýsingu á akstursleiðum og bætir sjónskilyrði án þess að trufla sjófarendur. Breytingarnar skila jafnframt verulegum orku- og rekstrarsparnaði og draga úr umhverfisáhrifum til lengri tíma.
