


Örn er byggingaverkfræðingur með sérhæfingu í sjálfbærni bygginga og þá sérstaklega gagnvart dagsbirtuhönnun. Örn hefur einnig tileinkað sér umsjón og ráðgjöf varðandi upplýsingalíkön mannvirkja (BIM).
Örn stundaði nám við Háskóla Íslands og Konunglega Tækniháskólann í Stokkhólmi (KTH) þaðan sem hann útskrifaðist með mastersgráðu í byggingarverkfræði (e. M.Sc. Architectural Engineering).
Þegar Örn er ekki í vinnunni að greina dagsbirtu eða annað líkt tileinkar hann tímanum sínum ljósmyndun eða einhverskonar útivist en það eru hans helstu áhugamál.
Annað....
Sérsvið:
Teymið
ABOUT
TEAM
PROJECTS
NEWS
CONTACT
Verkkaupi: Einkaaðili
Ár: 2024
Hlutverk Lisku:
-
Lýsingarhönnun
-
Innkaup
Samstarfsaðilar verkefnis:
-
Gláma-Kím arkitektar
Framleiðendur:
-
Super modular
-
ProLED
-
Light graphix
Ljósmyndun: Örn Erlendsson
Góð ljósvist á heimili felst í þægilegri, lagskiptri lýsingu sem dregur fram karakter heimilisins og skapar ró og notalegt andrúmsloft. Jafnframt þarf lýsingin að veita næga birtu fyrir ólíkar athafnir, svo sem matseld og heimilisþrif. Með samspili beinnar og óbeinnar lýsingar ásamt stýringum má skapa jafnvægi milli upplifunar og hagnýtra þarfa.
Ljósvistin á þessu heimili gerir einmitt þetta. Sem hluti af víðtækari endurbótum á heimilinu var lýsingin endurnýjuð með hlýrri, dimmanlegri, lagskiptri lýsingu með góðri litarendurgjöf. Látlaus lýsingin fellur vel að karakter heimilisins og dregur fram efni, liti, form og áferð. Allri lýsingu er stýrt með snjallstýringum sem auðvelda aðlögun birtunnar að ólíkum þörfum og stemningu hverju sinni.
Lögð var áhersla á að skapa karakter og dýpt með lýsingunni til að undirstrika fágaðan stíl heimilisins.













