top of page

Hallgrímskirkja - Lýsing í kirkjuskipi

Grunnupplýsingar

Tegund mannvirkis: Kirkja

Staðsetning: Hallgrímstorg 1, Reykjavík 101, Ísland

Ár: 2021-2022

Verkkaupi: Hallgrímskirkjusókn

Hlutverk Lisku:

  • Lýsingarhönnun

  • Casambi forritun, sviðsmyndir

  • Verkefnastjórnun og eftirlit með uppsetningu og fínstillingar

  • Kennsla á kerfi

 

Staða: Lokið

Tilnefningar og verðlaun:

  • IES Illumination awards 2023 winner, Destiction in interior lighting

  • LIT Lighting Design Awards 2022 Winner - Category: Spectrum - Innilýsing

  • Darc Awards, 2022 2nd. place - Places, High budget - Innilýsing

  • Casambi Awards, 2022 Shortlisted

Samstarfsaðilar verkefnis:

  • Hallgrímskirkjusókn

  • Fagraf

  • Erco Lighting / Ískraft

  • Casambi

  • Hornsteinar / Andrés Narfi

  • Verkpallar ehf.

Ljósmyndun: Örn Erlendsson / www.oe-photo.com

Upplýsingar um verkefnið

Hallgrímskirkja er eitt helsta kennileiti okkar Íslendinga og eitt af fjölsóttustu mannvirkjum landsins.

 

Árið 2019 voru seldir um 300.000 aðgangsmiðar í kirkjuturnin en áætlað er að að minnsta kosti tvöfalt fleiri gestir heimsækji kirkjuna ár hvert. Lesendur ferðamannasíðunnar Big Seven Travel kjósa árlega um 50 fegurstu byggingar heims en árið 2021 endaði kirkjan í 38 sæti. 127.000 lesendur miðilsins tóku þátt í kosningunni.

 

Þetta er ágætis staðfesting á því að byggingin vekur athygli langt út fyrir landsteinana. Það var því sannur heiður þegar Liska fékk það mikilsverða verkefni að endurnýja lýsingu í kirkjunni. 

Sú lýsing sem fyrir var í kirkjunni var komin til ára sinna. Leitast var við að nýta sem mest núverandi staðsetningar á lömpum og var það hægt í flestum tilfellum. Raflagnaleiðir voru því endurnýttar en allar kastarabrautir endurnýjaðar ásamt auðvitað kösturum. 

Tæknilegar upplýsingar

Fjöldi lampa: 206 stk

Tegund lýsingar: RGBW, WW og TW

Uppsetningarviðmót: Kastarabrautir

Stýring: Casambi

Lampaframleiðandi: Erco

DISTINCTION_INTERIOR LIGHTING (1).png
darcawards_logo(white).png
shortlisted.png

Hönnun og innkaup

Liska lagði fram frumhönnunartillögu fyrir sóknarnefnd Hallgrímskirkju á síðasta ársfjóðrunig 2021 og var tillagan samþykkt skömmu síðar..  Í kjölfarið auglýsti Liska verkefið til heildsala og var þeim gefin kostur á að tilgreina mögulega lampaframleiðendur. Margir framleiðendur sýndu verkefninu áhuga en eftir mat á tæknilegum útfærslum, verð og fleira var tveimur framleiðendum boðið að gera prófanir í samstarfi við Lisku í kirkjunni. Að lokum var það þýski lampaframleiðandinn ERCO á vegum Ískraft sem varð fyrir valinu. 

Verkáætlun

Í verkáætlun verkefnisins var lagt upp með að val á lampaframleiðanda lægi fyrir strax í upphafi árs 2022 og að endurnýjun innilýsingar væri lokið 13. september sama ár að endurskoðaðri dagskrá fyrir kirkjustarf kirkjunnar. Að endurskoðun lokinni var verktaka gefinn þriggja vikna gluggi til að klára framkvæmdina, þ.e. setja upp vinnupalla í kirkjuskipi, taka niður eldri lampabúnað, setja upp nýjan búnað og hafa kirkjunni tilbúna 16. september. Þessi áætlun stóðst upp á dag og en þar má sértsaklega þakka frábæru samstarfi allra hlutaðeigandi aðila sem og dugnaði og skipulagi Fagraf sem fór með verklega framkvæmd. Verklega framkvæmdin einkenndist af jákvæðu og lausnamiðuðu samstarfi allra aðila.

Hugmyndafræðin

Ljósvist í kirkjunni þarf að þjóna starfi kirkjunnar, upphefja arkitektúrinn og gefa kost á fjölbreytilegri lýsingu en á hefðbundnu starfsári kirkjunnar er fjöldi ólíkra athafna og viðburða, svo sem athafnir samkvæmt hefðbundnu kirkjustarfi og tónleikar. Útfærsla þessara athafna og viðburða er jafnframt mjög fjölbreytt en sem dæmi eru tónleikar haldnir bæði í framhluta kirkjuskipsins og framan við eða í kór kirkjunnar. Þar að auki eru tónleikar misstórir. Messur og annað starf kirkjunnar er jafnframt fjölbreytt.

 

Allt þetta kallar á möguleika til að skipta lýsingu eftir svæðum og viðburðum og að einfalt sé að stýra henni. Lýsing er því skipt upp í mismunandi flokka eftir svæðum og miðað við þann flöt sem verið er að lýsa. Dæmigerðir flokkar eru gangleiðir, setsvæði, altar, kórgólf, orgel, hvelfingar, sérlýsing o.s.frv. 

 

Kastarar eru staðsettir þannig að þeir eru flestir úr augsýn þegar gengið er inn í kirkjuna. Þess er einnig gætt að beina kösturum svo þeir valdi ekki glýju eða trufli þegar gengið er um kirkjunna eða horft upp í loft.

 

Öll lýsing sem lýsir á loft og veggi kirkjunnar er RGBW en önnur lýsing er almennt 3000K. Ýmis sérlýsing er með breytilegt litarhitastig. Sem dæmi er lýsing á altar með breytilegt litarhitastig svo hægt sé að láta altar standa út hvort sem baklýsing sé hlý, köld eða litrík. Öll lýsing er dimmanleg og stjórnast með Casambi Bluetooth stýrikerfi. Grunnsenur eru forritaðar í Casambi rofa en aðrar fjölbreyttar senur eru aðgengilegar í aðgangsstýrðri spjaldtölvu. Lýsing er notuð til að breyta rýmisupplifun gesta t.d. með því að stýra styrk, litarhitastigi og lit lýsingar til að þess að styrkja lárétt eða lóðrétt form kirkjunnar og breikka eða hækka rýmið með lýsingu.

Fjallað var ítarlega um hugmyndafræðina og verkefnið í frétt sem birtist á heimasíðu Lisku 21. september. Lesa má fréttina hér.

English

Hallgrímskirkja is one of Iceland’s most important landmarks and icons. The building is not only a place of worship, but also a hub hosting cultural events. A smart wireless lighting ecosystem was designed and installed in 2022. Automatic lighting cycles save energy in the Nordic conditions and allow for application of human centric lighting (HCL). With respect to its architectural heritage and functionality during service and opening hours, lighting offers breath-taking scenes for contemplation or cultural events. Lighting scenes give depth, dimension, optically broaden the church during community events or emphasize verticality in spiritual events. Warm downlight compliments wooden furnishing and creates a comforting atmosphere. RGBW lights in vaults and corridors strengthen architectural features, in combination with tuneable white (TW) to introduce HCL.  Individual control offers endless creative options during events as well as use of liturgical colours throughout the year. The altar is illuminated by TW spotlights, standing out regardless of the colour of other lights. TW front- and RGBW backlight of the organ engage in a shadowplay changing with temperature and colour. Externally, the façade acts as a display of engagement in religious and national celebrations or international movements. Harmony is achieved by dialogue between the wireless indoor and outdoor DMX lights.

bottom of page