top of page

Bjartari og öruggari höfn

Writer: Liska ehf.
Liska ehf.
5 hours ago
1 min read

Fyrr á þessu ári unnum við, í samstarfi við Faxaflóahafnir, að endurbótum á ljósvist við Ægisgarð í Gömlu höfninni í Reykjavík.


Með framkvæmdunum hafa birtuskilyrði á svæðinu batnað til muna og orkunýtni lýsingarinnar aukist umtalsvert.


Ljósmynd: Faxaflóahafnir
Ljósmynd: Faxaflóahafnir

Tvö eldri möstur voru fjarlægð og í þeirra stað sett upp ný, 18 metra há stálmöstur frá FerroZink/Valmont. Eldri ljósbúnaði með natríumperum var jafnframt skipt út fyrir afkastamikla LED-lampa frá Philips með 3000 K litarhitastigi. Þá voru utanáliggjandi flúrlampar á húsnæði við Ægisgarð endurnýjaðir með Rook-vegglömpum frá Vizulo, einnig með 3000 K litarhitastigi.


Markmið framkvæmdanna var að auka og jafna birtu á svæðinu, bæta öryggi og skapa betra heildaryfirbragð fyrir gangandi vegfarendur, starfsfólk og aðra sem fara um svæðið. Nýi búnaðurinn veitir jafna lýsingu á akstursleiðum og bætir sjónskilyrði án þess að trufla sjófarendur.


Breytingarnar skila jafnframt verulegum orku- og rekstrarsparnaði og draga úr umhverfisáhrifum til lengri tíma.


Sjón er sögu ríkari en í spilaranum hér fyrir neðan má sjá myndband af lýsingunni fyrir og eftir endurbætur.



 
 
bottom of page