Tilnefning í Darc Awards
- Liska ehf.

- 22 hours ago
- 1 min read
Þær skemmtilegu fréttir voru að berast okkur að Liska væri tilnefnt í Darc Awards fyrir lýsingarhönnun á turninum við Smáratorg.

Við værum afskaplega þakklát ef lesendur gæfu sér tíma til að skoða tilnefningarnar og kjósa okkur. Hlekkur til að kjósa er hér: https://darcawards.com/vote/
Darc verðlaunin eru hönnunarverðlaun sem byggja á sterku orðspori tímaritanna arc Magazine og darc Magazine, sem teljast meðal virtustu miðla um lýsingarhönnun í heiminum. Dómnefnd tilnefnir (e. shortlist) verkefni úr 6 flokkum en það er svo í höndum fagaðila á sviði lýsingarhönnunar, innanhúsarkitektúrs, arkitektúrs og vöruhönnunar að kjósa sigurvegara í hverjum flokki.
Flokkarnir sex eru:
Structures
Places
Spaces
Art
Event
Kit
Í hverjum flokki eru svo undirflokkar eftir stærð verkefnis og fleira. Verkefnið okkar er í flokkinum "Structures - High Budget" og erum við þar meðal 28 verkefni víðs vegar að úr heiminum.

Umfjöllun um verkefnið okkar á vefsíðu Darc Awards má finna hér: Turninn – A landmark on the horizon, Iceland – darc awards
Þá má einnig finna upplýsingar og myndefni á heimasíðunni okkar hér.
Þetta er viðurkenning sem við erum mjög stolt af og óskum við verkaupa, Eik Fasteignafélag, samstarfsaðilum og öllum hlutaðeigandi til hamingju með tilnefninguna.




