Liska vinnur til verðlauna á GDA fyrir Freyjugarð
- Liska ehf.

- Jan 21
- 2 min read
Verkefnið Freyjugarður er meðal verkefna sem hlutu verðlaun í flokki lýsingarverkefna í arkitektúr á árlegri verðlaunahátíð German Design Council. Hátíðin ber heitið German Design Awards, GDA.

Á heimasíðu German Design Awards má lesa:
“The internationally acclaimed awards honour projects that drive innovation, embrace responsibility and open up new perspectives through design. Initiated by the German Design Council, the German Design Awards stand for design excellence with purpose — interdisciplinary in thinking, globally connected, and strategically relevant.”
Verkefnið er unnið í samstarfi við Landmótun landslagsarkitekta, Reykjavíkurborg, Sigrúnu Úlfarsdóttur hugmyndasmið og Narfa Þorsteinsson, listamann.
Fjölmenn dómnefnd skipuð fagaðilum metur innsendar tilnefningar sem voru 3.900 talsins í ár. Verðlaun eru veitt í fimm flokkum, þ.e. "Product design", "Communication design", "Architecture", "Circular design" og "Service design". Formleg verðlaunaathöfn mun fara fram í febrúar.
Í greinargerð dómnefndar kemur eftirfarandi fram um Freyjugarð:
"A finely tuned lighting concept creates a powerfully tranquil atmosphere and guides visitors through »Freyjugarður«. The interplay of gentle bollards, atmospheric color accents in the canopy, and an aesthetic lantern is harmonious and subtle. Especially impressive is the fusion of light and art at the Yggdrasil mural, which becomes emotionally resonant at dusk and powerfully emphasizes the poetic tribute to female poets."

Rúmlega helmingur verkefna sem voru tilnefnd eru alþjóðleg og koma frá 57 löndum. Þetta er því mikill heiður sem við erum stolt af og óskum við öllum samstarfsaðilum, verkkaupa og öðrum hlutaðeigandi aðilum til hamingju með verðlaunin.
Nánar er fjallað um verkefnið á verkefnavefnum okkar, hér.
Ljósmyndir: Örn Erlendsson
Verkefnið er í hópi glæsilegra verkefna og óskum við öllum sigurvegurum German Design Awards innilega til hamingju með árangurinn. Lesa má um sigurvegara allra flokka, hér.
















