top of page
Search
  • Writer's pictureLiska ehf.

Naustatorg

Updated: Nov 7, 2019

Nýlega kláruðust framkvæmdir á Naustatorgi sem stendur á Naustareit við Geirsgötu í Reykjavík. Landslagsarkitektar torgsins eru Landslag en þar stendur einnig skúlptúr á vegum Reykjavíkurborgar sem búinn er til úr skrúfuhring úr skipi sem hefur verið máluður gulur. Skúlptúrinn er vísun í höfnina og slippinn sem staðsett eru skammt frá og er skúlptúrnum ætlað að draga fólk að svæðinu.


Liska sá um lýsingu á torginu þar sem markmiðið var að skapa góða ljósvist ásamt því að leggja áherslu á skúlptúrinn. Svæðislýsing torgsins samsvarar lýsingu Geirsgötunnar en pollum var einnig komið fyrir meðfram gönguleið svæðisins til þess að skapa látlausa lýsingu.

Skúlptúrinn sjálfur er ætlaður sem ákveðinn "instagram áningarstaður" og var lýsingu þess vegna beint með þröngum geisla í gegnum gatið til að lýsa vel upp fólkið sem stillir sér þar upp fyrir myndavélina.


Ljósmyndir: Örn Erlendsson


134 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page